Frétt frá knattspyrnudeild Þróttar

Félagskaffi Þróttara byrjar aftur á laugardaginn.

 

Knattspyrnudeild Þróttar auglýsir opið alla laugardaga í vetur milli 11-13 uppí Íþróttahúsi.

 

 

Við hjá Þrótti Vogum ætlum að efla félagsstarfið enn frekar hjá okkur í vetur og verðum með opið hús í Íþróttamiðstöðinni Vogum alla laugardaga í vetur milli kl. 11 og 13. Þangað geta allir komið í kaffi, hitt gamla félaga og kynnst nýjum úr okkar skemmtilega hópi.


Við byrjum formlega næsta laugardag 4. janúar Enn fremur geta allir tekið þátt í innanfélagsleik okkar í getraunum og sýnt snilli sína á því sviði. Kunnir þú ekki að tippa þá eru sérfræðingar okkar boðnir og búnir að aðstoða þig. Hafir þú ekki áhuga á að tippa er það líka í góðu lagi svo framarlega sem þú mætir með góða skapið. Hlökkum til að sjá þig.

 


Einnig bjóðum við uppá innanfélagsleik hjá okkur fyrir þá sem vilja. 

 

4. janúar verður félagskaffið á sínum stað milli 11-13 og opnar þá fyrir skráningu í Getraunadeild félagsins.
11. janúar byrjar Getraunadeild félagsins.
1. febrúar 16 liðaúrslit bikarkeppni.
8. mars byrjar úrslitakeppnin.

Glæsilegt lokahóf þann 5. apríl Getraunadeildar. Getraunameitarar Þróttar 2014, Rjómar ársins, Vogaídýfubikarinn og ekki má gleyma bikarmeisturum Getraunaklúbbs Þróttar.
Glæsilegur Brönz verður 8. febrúar eingöngu fyrir meðlimi Getraunadeildar.

Það er gaman að vera Þróttari í dag og taka þátt í starfi félagsins. Það eru allir velkomnir til okkar í kaffi á laugardögum. Endilega taktu með þér fjölskyldumeðlim, frænda, frænku eða vin. Við erum alla laugardaga á milli 11-13 heitt á könnunni.

 

Þessi félagsskapur hefur slegið í gegn og eru í kringum 40 manns sem eru að taka þátt í þessum leik.