Vatnsleysustrandarhreppur tilnefnt eitt af framsæknustu sveitarfélögum
landsins.
Hjá Sambandi íslenkra sveitarfélaga stendur til að veita framsæknum
sveitarfélögum viðurkenningu í hvatningaskyni á ráðstefnu í vor.
Vatnsleysustrandarhreppur er eitt af þrettán sveitarfélögum sem Sambandið
hefur tilnefnt. Viðurkenningar verða veittar í þremur stærðarflokkum.
Verkefnin sem hreppurinn stefnir að því að kynna er reynsla af notkun
skorkorts "Balance scorcard" sem stjórntæki og markaðssetningin "Vogar
færast í vöxt".