Framlagning kjörskrár í Sveitarfélaginu Vogum

Athygli kjósenda í Sveitarfélaginu Vogum er vakin á því að kjörskrá vegna forsetakosninganna þann 25. júní næstkomandi verður lögð fram á bæjarskrifstofum þann 15. júní 2016.

Einnig hefur verið opnað fyrir uppflettingu á vefnum „Hvar á ég að kjósa?“ á heimasíðu Þjóðskrár Íslands, www.skra.is, þar sem hægt er að kanna hvort og hvar einstaklingar eru á kjörskrá.

Hver sem er getur gert athugasemdir við bæjarstjórn um að nafn einhvers vanti á kjörskrá eða sé þar ofaukið. Slíkar athugasemdir er heimilt að gera fram á kjördag. Komi fram athugasemd um að nafn skuli tekið af kjörskrá skal það þegar tilkynnt hlutaðeigandi einstaklingi. Bæjarstjórn skal þegar taka til meðferðar athugasemdir er henni berast við kjörskrá og gera leiðréttingu á henni ef við á, en heimilt er að gera slíka leiðréttingu fram á kjördag. Enn fremur skal sveitarstjórn leiðrétta kjörskrá ef henni berst vitneskja um andlát eða um að einhver hafi öðlast eða eftir atvikum misst íslenskt ríkisfang. Bæjarstjórn skal þá tilkynna hlutaðeigandi um leiðréttingar á kjörskrá og þeirri sveitarstjórn annarri sem málið getur varðað.

Bæjarstjóri