Framkvæmdum vegna ljósnetsins lokið.

Framkvæmdir í Vogum vegna lagningar ljósnetsins sem staðið hafa yfir síðustu vikur, er nú lokið. Þar með fá heimili í Vogum möguleika á verulega auknum gagnaflutningshraða sem leyfir m.a. flutning á mörgum háskerpusjónvarpsrásum samtímis, frábæra internettengingu og bestu aðstæður til fjarvinnu. 

Míla og Rafholt óska íbúum í Vogum til hamingju með ljósnetið og þakka fyrir þolinmæði og tillitsemi meðan á framkvæmdum stóð.