Framkvæmdir við Aragerði

Hafnar eru framkvæmdir við endurgerð götunnar á milli Ægisgötu og Tjarnargötu. Óhjákvæmilega hafa framkvæmdirnar í för með sér nokkra röskun og truflun fyrir íbúa meðan á þeim stendur. Verður reynt eins og kostur er að akandi og gangandi umferð geti gengið fyrir sig með sem minnstri röskun.

Um leið og beðist er velvirðingar af því ónæði sem af þessu hlýst er óskað eftir því að íbúar og aðrir sem þar eiga leið um sýni biðlund og taki tillit til framkvæmdanna og þeirrar umferðastýringar og lokanna sem þeim fylgir.

Verklok eru áætluð eigi síðar en 30. júní nk.


Sveitarfélagið Vogar