Framkvæmdir vegna vatnsveitu

Mánudaginn 15. september 2014 verður unnið við lagfæringu á vatnsveitulögn í Hafnargötu, á móts við Vogagerði. Búast má við einhverjum töfum á umferð á meðan viðgerð stendur. Bæjarbúar eru hvattir til að aka varlega um vinnusvæðið og sýna fyllstu aðgát meðan unnið er að viðgerðinni.