Framhaldsstofnfundur Norræna félagsins 27. október

Fimmtudaginn 27. október nk. kl. 17:30-18:30  verður framhaldsstofnfundur deildar Norræna félagsins í Vogum haldinn í Álfagerði.

Þeir sem hafa áhuga á því að kynna sér félagið og eða gerast félagar eru hvattir til þess að mæta.

Allir velkomnir, heitt verður á könnunni.

Meðfylgjandi mynd er af nýskipaðri stjórn deildar Norræna félagsins í Vogum.