Frábært veður til að skauta á Vogatjörn

Nú er traustur ís á Vogatjörn og slétt skautasvell á hluta hennar. Það spáir frosti og sólríku veðri næstu 2 daga og tilvalið að drífa sig á skauta og sleða.

Hvernig væri að blása lífi í skautaíþróttina í Vogum og nýta okkur góða aðstöðu þegar veður og færi leyfir?