Frá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

Athugið frá og með 1. febrúar n.k. breytist opnunartími í móttöku og afgreiðslu HSS í Reykjanesbæ 
sem hér segir:

Móttakan er opin alla virka daga frá kl. 07.30 – kl. 20.00
Móttakan er opin allar helgar og helgidaga frá kl. 10.00 - kl. 19.00

Tekið er á móti neyðartilfellum allan sólarhringinn. 

Öll starfsemi heilsugæslunnar og sjúkrahússins er óbreytt.  Vaktlæknir er í húsinu allan sólarhringinn.  Einnig verður vakthjúkrunarfræðingur í húsinu til kl. 21.30 alla virka daga.

Vinsamlegast hringið í 112 ef þið þurfið á læknisaðstoð að halda utan opnunartíma.

Ef um neyðartilfelli er að ræða og þið hafið ekki síma meðferðis má hringja á dyrabjöllu legudeildar/Ljósmæðravaktar við inngang elstu byggingar sjúkrahússins (A álmu).


Sigríður Snæbjörnsdóttir