Forvarnardagur í Vogum laugardaginn 19. maí 2012

Laugardaginn 19. maí verður haldinn forvarnardagur í Vogum. Dagurinn er samstarfsverkefni Sveitarfélagsins Voga, lögreglustjórans á Suðurnesjum, Tæknismiðju, Nesbús, Umf Þróttar og Brunavarna Suðurnesja.

Eru íbúar hvattir til að mæta og taka þátt í fjölbreyttri dagskrá.


11:00 – 12:00 Hjólaskoðun við hús Tæknismiðjunnar (gamla Skyggnishúsið).

  • Reiðhjólaskoðun á vegum lögreglunnar.
  • Fulltrúar Tæknismiðju aðstoða fólk við lagfæringar á reiðhjólum.
  • Opið hús hjá Tæknismiðjunni 11:00-16:00.


12:00 - 13:00 Hjólaferð um bæinn.

  • Hjólað frá Tæknismiðju um Vogana og endað við íþróttamiðstöð.

13:00 - 16:00 Opið hús hjá lögreglunni í sal félagsmiðstöðvar.

  • Til sýnis verða ökutæki lögreglu ásamt tækjum og búnaði sem lögreglan notar.

13:00 - 16:00 Sjúkra- og slökkvibifreið frá Brunavörnum Suðurnesja til sýnis við íþróttamiðstöð.

14:00 - 16:00 Hjólaþrautir við íþróttamiðstöð í umsjón Þróttar.

 

Frítt í sund 11:00-16:00 sundþjálfari frá Þrótti á staðnum frá kl. 14:00 – 16:00

Minnum á hjálma og að allir séu klæddir eftir veðri

Íspinnar fyrir alla í boði Nesbú eftir hjólaferð