Forseti Íslands afhjúpar verkið Íslands Hrafnistumenn

 

Forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, afhjúpaði við hátíðlega athöfn á Fjölskyldudaginn verkið Íslands Hrafnistumenn eftir Erling Jónsson listamann. Með honum í för var forsetafrúin, Frú Dorrit Moussaieff.

Listaverkið er reist sem minnisvarði um sjómennsku og útgerð frá Vogum og Vatnsleysuströnd en Vatnsleysuströndin var ein stærsta verstöð landsins á tímum árabátaútgerðar. Verkið stendur á Stóru-Voga túni við Stóru-Voga tanga. Aðeins vestar við verkið, á Eyrarkotsbakka, var Útgerðarfélag Vatnsleysustrandar stofnað árið 1930 af bændum. Félagið lét m.a. byggja bryggju, báta og fiskverkunarhús með verbúð.

Forsetinn afhjúpaði verkið með aðstoð bekkjarbræðra úr Stóru-Vogaskóla þeirra Þórarins Birgissonar, Ragnars Karls Frandsen og Magnúsar Árnasonar. Þeir eru innfæddir Strandaringar og Vogamenn, um æðar þeirra rennur sjómennsku- og útgerðarmanna blóð.

Við athöfnina söng stórsöngvarinn Bjarni Thor Kristinss, ættaður frá Vatnsleysuströnd, lagið Íslands Hrafnistu Menn við harmonikkundirleik Braga Hlíðbergs.

Verkið er unnið að frumkvæði Birgis Þórarinssonar Minna- Knarrarnesi með aðstoð Birgis Guðnasonar hjá Listasafni Erlings Jónssonar. Þeir fóru þess á leit við Erling að hann kæmi að gerð listaverks, sem skýrskotaði til sjómennsku og útgerðar héðan. Erlingur brást mjög vel við erindinu og fylltist miklum eldmóð, en Erlingur er fæddur á Vatnsleysuströnd.

Verkið og umgjörð þess var styrkt af eftirtöldum aðilum og er gjöf þeirra til sveitarfélagsins og íbúa þess.

Sparisjóðurinn í Keflavík
Sveitarfélagið Vogar
Bræðurnir frá Halakoti, Magnús, Guðmundur og Ragnar Ágústssynir.
Særún Jónsdóttir og fjölskylda.
Þorbjörn ehf.
Menningarráð Suðurnesja.
Landslag ehf.