Fjölskylduratleikur hjá Þekkingarsetri Suðurnesja

Þekkingarsetur Suðurnesja býður í sumar upp á fjölskylduratleikinn Fjör í fjörunni sem við hvetjum alla til að prófa. Í leiknum er farið vítt og breitt um nágrenni Sandgerðis þar sem Þekkingarsetrið er staðsett. Leikurinn er spennandi og skemmtilegur og hentar öllum aldurshópum. Það eina sem þarf að hafa meðferðis er ökutæki og myndavél. Þeir sem ná að ljúka ratleiknum mega eiga von á glaðningi.

Hver fjölskylda greiðir 1.000 kr. fyrir þátttöku sem felur einnig í sér aðgang að sýningum Þekkingarsetursins.
Í sumar er opið alla virka daga frá kl. 10-16 og allar helgar frá kl. 13-17.
Nánari upplýsingar má fá á heimasíðu Þekkingarsetursins: www.thekkingarsetur.is