Markmið hátíðarinnar er að bæjarbúar skemmti sér saman. Fjölskyldudagurinn hefur reynst gott tækifæri til að hrista saman nýja sem gamla Vogamenn og Strandaringa og eiga saman góðan dag.
Fjölskyldudagurinn er einn dagur, þar sem kappkostað er að það sé nóg um að vera fyrir alla aldurshópa, allan daginn og fram á kvöld.
Dagskráin er sniðin að fjölskyldunni, þar sem áhersla er lögð á samveru og samvinnu fjölskyldunnar.
Á dagskrá er meðal annars; dorgveiðikeppni, Vogaheimsmet í vatnsbyssustríði verður sett, kassabílarallý, risamylla, leiktæki, handverksmarkaður, ratleikur fjölskyldunnar,listasmiðja og margt fleira skemmtilegt.
Listafólk og handverksfólk sem hefur áhuga á að koma að hátíðinni með sölu á munum/eða sýningu á verkum sýnum, endilega hafið samband á tomstund@vogar.is eða í síma 424 6882 virka daga milli 09-15.
Klukkan 19 hefst Hverfagrillið. Bænum er skipt í þrjú hverfi og eru íbúar hvattir til að koma út og grilla með nágrönnum sínum. Nú er tækifærið til að taka höndum saman, skreyta og skipuleggja sitt svæði og skapa skemmtilega stemningu. Á meðfylgjandi korti má sjá hver skiptingin er.
Pylsur og verða í boði Sveitarfélagsins og Glitnis, en fólki er að sjálfsögðu frjálst að taka með sér sína eigin rétti og skella á grillið.
Vakin er athygli á því að bæjarráð Sveitarfélagsins Voga hefur samþykkt að hundahald verði bannað á aðalsvæðinu í Aragerði á Fjölskyldudaginn.
Ennfremur viljum við árétta að Fjölskyldudagurinn er dagur fjölskyldunnar og ætti því að vera áfengis- og vímuefnalaus.
Allir velkomnir.
Hér má nálgast dagskrána og hverfaskiptingu fyrir grilllið. Endilega prenta út til að hafa með sér á Fjölskyldudaginn.
Dagskrá Fjölskyldudagsins
Hverfaskipting