Fjölskyldudagurinn 9. ágúst. Hefur þú áhuga á að taka þátt í dagskránni?

Eins og undanfarin ár mun Kassabílarallýið vera á sínum stað á Fjölskyldudaginn.  Keppt verður í tveimur flokkum
10 ára og yngri / 11 ára og eldri.
Þannig að nú er um að gera að taka upp verkfærin og hefja smíðar á flottustu og hraðskreiðustu kassabílum bæjarins.

Við auglýsum eftir skemmtiatriðum úr bænum
Bæði frá ungum og öldnum.
Hefur þú eitthvað fram að færa ? Hafðu þá samband við starfsfólk félagsmiðstöðvarinnar í síma 424-6882 eða senda póst á tinna@vogar.is

Handverksmarkaður
Þeir sem hafa áhuga á því að selja/sýna handverk og annað slíkt á fjölskyldudaginn þurfa að panta borð/pláss. Handverksmarkaðurinn verður að þessu sinni í tjöldum í Aragerðinu.  Hafið samband við starfsfólk félagsmiðstöðvar í síma 424-6882 eða senda póst á tinna@vogar.is

Mynd: Frá dorgveiðikeppni í sól og blíðu 2007.