Fjölskyldudagurinn 2011

Fjölskyldudagurinn í Vogum var haldinn með glæsibrag að venju. Dagskráin var þétt og góð. Aðeins er farið að teygjast úr deginum þar sem hann hófst á föstudagskvöldi með varðeld og grilli og lauk á sunnudegi með golfmóti á Kálfatjarnarvelli.

Keppt var í nokkrum greinum og eru helstu úrslit þessi:

Kassabílarallý
10 ára og yngri:
1. sæti Símon Kristjáns, Ýmir og Stella
2. sæti Sigurbjörg, Guðbjörg og Ólafur
3. sæti Diljá Dögg

11 ára og eldri:
1. sæti Daníel
2. sæti Sindri, Tóti og Maggi
3. Elmar Þór, Sólrún og Jana

Sápuboltinn
Yngri flokkur: Liðið Sony Center

Eldri flokkur: Liðið Sugardaddy


Ökuleikni
Sjá úrslit hér

Texas scramble
Sjá úrslit hér
 
Eins og áður þá var sveitarfélaginu skipt í þrjú hverfi, grænt, gult og rautt.
 
Græna hverfið var valið best skreytta hverfið.
Lyngdalur 2 var valið best skreytta húsið.
 
Myndasmiður var Gréta Magnúsdóttir, sjá myndasafnið hér.

Bæjarstjórn þakkar öllum sem komu að deginum og lögðu á sig óeigingjarnt starf í þágu fjöldans. Vandi er að velja einstaklinga þó má nefna kynninn, Magnús Björgvinsson, sem stóð sig með stakri prýði og sýndi takta og tilþrif sem heimamönnum eru vel kunn.

Félög í sveitarfélaginu gerðu sitt til að dagurinn varð að veruleika, án þeirra væri margt á annan veg. Félagsauður er hugtak sem notað er þegar reynt er að komast að því hvort samfélög, fyrirtæki og annað því líkt hafi möguleika á að dafna og blómstra.  Litið er á félagsauð sem auðlind samfélaga með sama hætti og efnislegan auð og mannauð. Sveitarfélagið er einstaklega ríkt. Munum það og höldum áfram að byggja upp auð okkur öllum til góða.