Fjölskyldudagur

Fjölskyldudagurinn í Vogum var haldinn laugardaginn 7. ágúst s.l. Þessi hátíð var stærri og viðameiri en undanfarin ár. Eitt og annað var til skemmtunar allan daginn og fram ákvöld. Það var keppt í ýmsum skemmtilegum uppákomum og lék veðrið við viðstadda.  Hér fyrir neðan má sjá myndir frá ýmsum þeim uppákomum sem boðið var upp á og er ekki annað að sjá en flestir hafi skemmt sér hið besta.