Fjölskyldudagar. Háibjalli í kvöld.

Kæru félagsmenn í Norræna félaginu í Vogum - og þið hin!

 

Þá er komið að því: Við syngjum saman í skógarsal Háabjallans í kvöld og hlustum á alls kyns söng, mest af norrænu tagi.

Þetta hefur verið að þróast á fésbókarsíðu okkar.

 

Þessi viðburður í umsjón Norræna félagsins í Vogum og skógræktarfélagsins Skógfells, og hluti af Fjölskyldudögum í Vogum.

Allir syngja, textar á blaði. Þemu: sumarkvöld og norræn vísnahefð.

 

Hér má finna söngtexta sem verður dreift í kvöld.


Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir syngur norræn vísnalög, mörg með textum á íslensku, m.a. í þýðingu föður síns, Aðalsteins Ásbergs. Hún er menntuð í norrænum vísnasöng og hefur víða komið fram, oft með Vigdísi Hafliðadóttur undir nafninu Vísur og skvísur.

 

Tríóið Gott kvöld úr Keflavík tekur nokkur lög.

Sigurður Kristinsson frá Grindavík flytur Rómönsu á gítar við eigin texta og dóttir hans, Kristjana, syngur líklega einnig.

Eyþrúður Ragnheiðardóttir spilar á rafmagnsfiðlu/viólu, ýmist ein, eða með föður sínum Þorvaldi Erni og með fjöldasöng.

Félagar úr söngfélaginu Uppsiglingu leiða fjöldasöng og spila með.

Fleiri koma fram með stutt atriði. Þetta verður fjölbreytt!

Gestir grilla sér spýtubrauð yfir eldi. Mjög vinsælt.

 

Gengið úr Vogum eða ekið af Grindavíkurvegi á móts við Seltjörn. Einnig jeppafært úr Vogum undir Reykjanesbraut.

Það spáir sól og blíðu. Verðum auk þess í skjóli trjáa. Gott að hafa með teppi eða eitthvað til að setjast á því ekki verða bekkir fyrir alla.

 

Hér er mjög skemmtileg útgáfa á Värmelandsvisunni þeirri sænsku, https://www.youtube.com/watch?v=04gTLzO1HGo

 en við tökum þó líklega mest mið af útgáfu Hjálma

 

Látið vini ykkar vita svo þeir missi ekki af. Sjáumst svo í Háabjalla kl. 19 í kvöld.

Bestu kveðjur. Þorvaldur Örn Árnason