Fjölskyldubolti á Vogavelli

Foreldrafélag knattspyrnudeildar Þróttar stóð fyrir fótbolta fyrir alla fjölskylduna á Vogavelli þann 14. júní síðastliðinn. 
Viðburðurinn mæltist mjög vel fyrir og var vel mætt. Skipt var í 4 lið sem skipuð voru börnum frá um eins árs og foreldrum þeirra, en á sjötta tug barna og foreldra mættu til að gera sér glaðan dag saman.
Foreldrafélagið seldi veitingar á vægu verði, grillaðar pylsur, svali, kleinur og kaffi.

Foreldar og börn héldu glöð heim á leið að leik loknum, en öll voru þau sigurvegarar.