Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Voga

E- og H-listi hafa ákveðið að vinna saman  að fjárhagsáætlun ársins 2010 og 3ja ára áætlun Sveitarfélagsins Voga. Stefna listanna er að rekstur sveitarfélagsins verði hallalaus. Vinnuhópur sem skipaður var mun leita til forstöðumanna og fagnefnda um tillögur og útfærslur. Hópurinn mun funda reglulega. Stefnt er að því að leggja fjárhagsáætlun fram á fundi bæjarstjórnar í nóvember.