Fimleikastelpur úr Vogum verðlaunaðar

Sunnudaginn 10. janúar valdi Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar íþróttamann ársins. Auk þessa vals veitti ráðið fjölmörgu íþróttafólki úr ýmsum íþróttagreinum viðurkenningar fyrir góðan árangur í sinni grein.

Þrjár stúlkur úr Vogum æfa fimleika í 4. flokki troppfimleika hjá fimleikafélagi Garðabæjar. Vorið 2009 varð hópurinn þeirra deildarmeistarar í 4. flokki.
Stúlkurnar heita Anna Kristín Baldursdóttir, Kolbrún Fríða Hrafnkelsdóttir í 8. bekk og Aldís Heba Jónsdóttir í 9. bekk.