Ferðir Vogastrætós falla niður 24. október nk.

Mánudaginn 24. október falla tvær ferðir strætós niður, ferð kl. 08.35 og 14.30, aðrar ferðir verða samkvæmt áætlun.
Ferðirnar falla niður vegna viðhalds á bíl. Mánudagurinn 24. október er valinn þar sem þá er starfsdagur í grunn- og leikskóla.
 
Við vonum að þetta hafi sem minnst áhrif á ferðir íbúa í sveitarfélaginu.