Fengu afhentar viðurkenningar úr menntasjóði

Styrkjum úr Menntasjóði Sveitarfélagsins Voga hefur nú verið úthlutað í fyrsta sinn. Úthlutunin fór fram á fundi bæjarstjórnar miðvikudaginn 29. ágúst 2012. Alls hlutu 13 nemendur viðurkenningu úr sjóðnum að þessu sinni, 10 nemendur sem lokið hafa námi á öðru ári í framhaldsskóla og þeir 3 nemendur sem náðu bestum árangri í 10. bekk í Stóru-Vogaskóla vorið 2012. Nemendur eða fulltrúar þeirra mættu á fund bæjarstjórnar og tóku við viðurkenningarskjali og peningaverðlaunum úr hendi Ingu Sigrúnar Atladóttur, forseta bæjarstjórnar.

Nemendur sem lokið hafa námi á öðru ári í framhaldsskóla hlutu viðurkenningu:
Eyþrúður Ragnheiðardóttir
Berglind Káradóttir
Guðmunda Birta Jónsdóttir
Hekla Eir Bergsdóttir
Magnea Guðríður Frandsen
Marta S. Alexdóttir
Steinar Freyr Hafsteinsson
Sævar Sigurjón Ríkharðsson
Tomas Barichon
Valgerður Kristín Kjartansdóttir

Eftirtaldir nemendur sem luku grunnskólaprófi frá Stóru-Vogaskóla vorið 2012 og voru með bestan námsárangur fengu viðurkenningar:
Anna Kristín Baldursdóttir: 9,7
Aníta Ósk Drzymkowska: 9,5
Kolbrún Fríða Hrafnkelsdóttir: 9,4


Mynd: Inga Sigrún Atladóttir forseti bæjarstjórnar ásamt nemendum og fulltrúum þeirra sem ekki gátu komið.