Félagsþjónusta Sandgerðisbæjar, Sv. Garðs og Voga óskar eftir

ungum og kraftmiklum einstaklingum til að starfa við liðveislu og persónulega ráðgjöf  í Vogum. Þetta eru áhugaverð og gefandi störf sem eiga það sameiginlegt að veita einstaklingum og fjölskyldum þeirra persónulegan stuðning hvert á sinn hátt. Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri.

• Liðveisla er starf sem felst í því að vinna með einstaklingum með fötlun og rjúfa félagslega einangrun þeirra.

• Persónulegur ráðgjafi veitir barni ráðgjöf og leiðbeiningar í þeim tilgangi að styrkja barnið félagslega og tilfinningalega s.s. í tengslum við tómstundir, menntun og vinnu.            


Nánari upplýsingar veitir Guðrún Björg Sigurðardóttir, félagsráðgjafi  eða Sigrún Pétursdóttir ráðgjafi  hjá Félagsþjónustu Sandgerðisbæjar, Sv. Garðs og Voga í síma 420-7555. Einnig má senda fyrirspurnir á Gudrun@sandgerdi.is  eða Sigrun@sandgerdi.is


Sveigjanlegur vinnutími sem hentar skólafólki vel ?