Félagsþjónusta Sandgerðisbæjar, Garðs og Voga óskar eftir einstaklingi til þess að sinna liðveislu

Félagsþjónusta Sandgerðisbæjar, sv. Garðs og sv. Voga óskar eftir að ráða liðveitanda til starfa fyrir fullorðinn einstakling í Vogum. Umsækjandi þarf að vera 25 ára eða eldri.

Liðveisla er áhugavert og gefandi starf sem felst í því að veita persónulegan stuðning og aðstoð sem er ætlað að rjúfa félagslega einangrun og styrkja fólk til þátttöku í menningar- og félagslífi. Starfið er mjög einstaklingsbundið þar sem þarfir þjónustuþega eru hafðar að leiðarljósi.

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Björg Sigurðardóttir félagsráðgjafi hjá Félagsþjónustu Sandgerðisbæjar, Garðs og  Voga í síma 420-7500 eða í tölvupósti gudrun@sandgerdi.is