Félagsstarf aldraðra

    
Miðvikudaginn 11. september fer félagsstarfið aftur af stað í Álfagerði eftir sumarfrí. Við ætlum að spila okkar margfrægu félagsvist frá kl. 13:00 og síðan verður kaffið á dagskrá kl. 15:00, kostar kr. 500. Arnþrúður Baldursdóttir, nýr umsjónarmaður félagsstarfsins verður kynnt til leiks og spjallað um komandi vetur. Hlakka til að sjá þig, kær kveðja,

Stefán Arinbjarnarson, frístunda- og menningarfulltrúi Voga