Félagslegar íbúðir til leigu

Félagslegar íbúðir fyrir eldri borgara

Sveitarfélagið Vogar auglýsir lausar til umsóknar tvær nýjar íbúðir fyrir eldri borgara í Álfagerði.

Í Álfagerði eru alls þrettán íbúðir fyrir 67 ára og eldri og samtengd þjónustumiðstöð. Íbúðirnar eru hvor um sig 46 m2 að stærð.

Umsækjendur skulu vera með skráð lögheimili í Sveitarfélaginu Vogum og uppfylla skilyrði um eigna- og tekjumörk í samræmi við reglugerð um lánveitingar til leiguíbúða nr. 873/2001 sem eru eftirfarandi:

Tekjur fyrir einstakling 2.686.000 kr.
Tekjur fyrir hjón og sambúðarfólk 3.760.000 kr.
Eignamörk verða 2.899.000 kr.

Sjá nánar á vef Íbúðalánasjóðs

Nánari upplýsingar í síma 440-6200.
Umsóknum skal skilað á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga fyrir 30. janúar