Félagslegar íbúðir fyrir eldri borgara

Sveitarfélagið Vogar auglýsir lausar til umsóknar tvær nýjar íbúðir fyrir eldri borgara í Álfagerði. Í Álfagerði eru alls þrettán íbúðir fyrir 67 ára og eldri og samtengd þjónustumiðstöð. Íbúðirnar eru hvor um sig 46 m2 að stærð.

Umsækjendur skulu hafa átt skráð lögheimili í Sveitarfélaginu Vogum a.m.k. síðustu 12 mánuði og uppfylla skilyrði um eigna- og tekjumörk í samræmi við reglugerð um lánveitingar til leiguíbúða nr. 873/2001.

Nánari upplýsingar í síma 424-6660.

Umsóknum skal skilað á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga fyrir 15. maí