Félag áhugafólks og aðstandenda....á FACEBOOK

Komið þið sæl um leið og við minnum á fundinn í dag kl. 16.30 í Selinu, kaffi og pönnukökur í boði. Þá viiljum við upplýsa ykkur um að FAAS deildin okkar á Suðurnesjum er komin með facebook síðu þar sem við getum deilt fundarboðum og fl. tengt vetrastarfi( FAAS félag áhugafólks og aðstandenda Alzheimerssjúklinga og annarra skyldra sjúkdóma á Suðurnesjum ) Viljið þið vinsamlega tengjast síðunni og deila, þannig að boðskapurinn berist sem víðast -- ath. þessi síða endar á ... á Suðurnesjum.. til aðgreiningar frá Reykjavík -

Takið með ykkur gesti á fundinn, þið þekkið eflaust  marga ættingja og áhugafólk og fl.fl. sem tengjast heilabilun og minnisskerðingunni í einhverri mynd.
Afsakið áróðurinn, en við bara verðum til að geta haldið þessari fræðslu á heimaslóðum
Með kveðju
FAAS tenglar á Suðurnesjum