Fasteignamat lóða

Eins og flestir vita voru fasteignir og lóðir í landinu endurmetnar á síðasta ári. Verulegar hækkanir urðu á lóðarmati í Vogum, allt að 500%. Hreppsnefnd gerði athugasemdir við matið þ.e.a.s. hún taldi ekki forsendur fyrir svo mikilli hækkun. 13.000 kærur bárust til Fasteignamatsins vegna endurmatsins og hafa 1.250 verið afgreiddar. Niðurstöður varðandi lóðarmatið í Vogum verða væntanlega ekki afgreiddar fyrr en í fyrsta lagi í sumar. Á meðan gildir nýja matið sem þýðir að fasteignagjöld  lóða hækka verulega. Ef lóðarmatið lækkar við endurskoðunina gildir sú lækkun frá síðustu áramótum.