Fasteignagjöld

Athygli er vakin á að villa var í texta greiðsluseðla fasteignagjalda, þar kom fram að gjalddagar fasteignagjalda væru ellefu. Hið rétta er að gjalddagar eru tíu. Síðasti gjalddagi ársins var 1. nóvember. Þessi villa í texta hafði engin áhrif á álagningu eða skiptingu fasteignagjalda á gjalddaga. Þær upplýsingar voru allar réttar. Við vonumst til að villan hafi ekki valdið vandræðum og að hún haldi sig fjarri á nýju ári.