Fasteign

Á fundi hreppsnefndar þann 11. maí s.l. voru samþykkt samningsdrög við fasteignafélagið Fasteign hf. þar sem fasteignafélagið kaupir núverandi skólahúsnæði og á og byggir jafnframt næstu viðbyggingu við skólann. Stefnt er að því að hefja vinnu við byggingu nýs áfanga í sumar og að hann verði tilbúinn að hausti 2005. Byrjað er að vinna hugmyndir að útfærslu viðbyggingar. Sveitarstjóra var falið að undirrita og jafnframt að ganga frá afsali fyrir skólann til Fasteignar hf.