Fánadagur Þróttar

27. júli héldu Þróttarar í Vogum uppá fánadag félagsins. Félagsmenn gerðu sér glaðann dag saman. Grillaðar voru pylsur, Þróttaravarningur var seldur til styrktar yngriflokka starfsemi félagsins. Þróttarar mættu - Stál-úlfi  í 4. deildinni seinna um kvöldið og  börn úr yngriflokkastarfi félagsins leiddu leikmenn inná völlinn fyrir leik. Fjölmenni var á hátíðinni. Var þetta í þriðja skipti sem Þróttarar héldu uppá fánadag félagsins. Þróttarar unnu leikinn 5-3 í skemmtilegum leik.
Einnig var 5. flokkur félagsins heiðraður fyrir sigur í N1 mótinu á Akureyri.
Nánar á: http://www.throttur.net/