Ertu góður félagi?

Ertu góður félagi?
Félagsþjónusta Sandgerðisbæjar, Garðs og Voga óskar eftir samstarfi við einstaklinga 18 ára og eldri sem hafa mikinn áhuga á starfi með börnum og ungmennum. Um er að ræða
starf sem persónulegur ráðgjafi.

Helstu verkefni og ábyrgð
Helstu verkefni persónulegra ráðgjafa er að sinna stuðningi við barn og að vera því góð fyrirmynd. Hlutverk persónulegs ráðgjafa skv. barnaverndarlögum er að veita barni ráðgjöf og leiðbeiningar í þeim tilgangi að styrkja það félagslega og tilfinningalega svo sem í sambandi við tómstundir, menntun og vinnu. Samband persónulegs ráðgjafa og barns byggist á gagnkvæmu trausti og vinsemd.
Hæfniskröfur
Góðir samskiptahæfileikar
Sjálfstæði í vinnubrögðum
Áhugi og reynsla af vinnu með börnum
Hreint sakavottorð

Frekari upplýsingar um starfið

Algengast er að um 12 klst. sé að ræða á mánuði en vinnutími er sveigjanlegur og fer eftur þörfum hvers og eins. Karlmenn eru sérstaklega hvattir til þess að leggja inn umsögn. Starfið hentar einstaklega vel sem hlutastarf með námi og er góður undirbúningur fyrir alla sem hyggjast stunda nám og/eða störf sem krefjast mannlegra samskipta. Ekki er krafist tiltekinnar menntunar eða reynslu, öll lífsreynsla getur komið að notum.

Einnig vantar okkur fólk á skrá til að sinna liðveislu í málefnum fatlaðra.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sóley Gunnarsdóttir í síma 420-7500 eða í tölvupósti á soleyg@sandgerdi.is