Er lögheimili þitt rétt skráð?

Með tilvísum til laga nr. 73/1952 um aðsetursskipti, er hér með vakin athygli á þeirri skyldu íbúa að tilkynna um aðsetursskipti í síðasta lagi 30. nóvember 2008. Eyðublöð fást á bæjarskrifstofunni og einnig á vef Hagstofunnar, www.hagstofa.is.
Vakin er athylgi á að þetta á við  bæði um flutning milli sveitarfélaga og innanbæjar.

Lögheimili er sá staður þar sem maður hefur fasta búsetu, skv. 1. gr. laga nr. 21/1990 um lögheimili. Maður telst hafa fasta búsetu á þeim stað þar sem hann hefur bækistöð sína, dvelst að jafnaði í tómstundum sínum, hefur heimilismuni sína og svefnstaður hans er þegar hann er ekki fjarverandi um stundarsakir vegna orlofs, vinnuferða, veikinda eða annarra hliðstæðra atvika.

Atvinnurekendur eru jafnframt hvattir til að brýna fyrir fólki, sem þeir ráða til starfa, að tilkynna aðsetursskipti ef búseta þeirra er í Sveitarfélaginu Vogum.

Upplýsingar og aðstoð fást á bæjarskrifstofu að Iðndal  2 og þangað ber að skila tilkynningum um aðsetursskipti.