Engin mengun – ekki þarf lengur að sjóða neysluvatn

Engin mengun mældist í sýnum sem tekin Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja tók úr  neysluvatni í Vogum í gær, mánudaginn 8. september.

Þetta eru ánægjuleg tíðindi og ekki er lengur þörf á að sjóða neysluvatn í varúðarskyni. Þetta kom fram í tilkynningu sem barst frá heilbrigðiseftirlitinu fyrr í dag.

Embættið mun áfram hafa sérstakar gætur á gæðum neysluvatns í Vogum næstu vikur og miðla upplýsingum þar um til bæjarbúa.