Endurnýja þarf umsóknir um húsaleigubætur fyrir 16. janúar 2016.
Vakin er athygli á að í 4. gr. reglugerðar um húsaleigubætur nr. 118/2003 segir meðal annars: "Sækja þarf um húsaleigubætur fyrir hvert almanaksár og gildir umsóknin til ársloka. Umsókn um húsaleigubætur skal hafa borist sveitarfélagi eigi síðar en 16. dag fyrsta greiðslumánaðar. Berist umsókn síðar verða húsaleigubætur ekki afgreiddar vegna þess mánaðar ."
Til þess að eiga rétt á húsaleigubótum fyrir janúar 2016 þarf ný umsókn um húsaleigubætur að berast á bæjarskrifstofu fyrir 16. janúar 2016, ásamt Staðgreiðsluskrá RSK 2015 allra heimilismanna yfir 18 ára.
Hægt er að nálgast staðgreiðsluskrá RSK t.d. á skrifstofu Sýslumannsins í Keflavík eða á vef Ríkisskattstjóra fyrir þá sem hafa rafræn skilríki/veflykil.
Ef umsækjandi fær greiðslur frá Tryggingastofnun Ríkisins, þarf einnig að skila inn afriti af Greiðsluáætlun 2016, hægt er að nálgast yfirlitið í byrjun janúar á vef Tryggingastofnunar.
Athugið! Nú er einnig hægt að senda inn umsókn ásamt fylgigögnum í gegnum Íbúagátt Sveitarfélagsins Voga.
Frekari upplýsingar fást í síma 440-6200 eða á netfanginu skrifstofa@vogar.is