Endurnýjun umsóknar um húsaleigubætur vegna ársins 2011

Endurnýja þarf umsóknir um húsaleigubætur fyrir 16. janúar 2011.
Hægt er að nálgast umsóknina á vefsíðu Velferðarráðuneytisins, sjá hér, einnig á skrifstofu sveitarfélagsins að Iðndal 2 og þangað þurfa gögnin að berast.
Með umsókninni þarf að skila inn upplýsingum um:

  • Staðgreiðsluyfirlit þar sem fram koma heildartekjur ársins 2010. (Hægt er að nálgast staðgreiðsluyfirlitið hjá Skattstofunni Hafnarfirði, Suðurgötu 14, s: 515-2900.)
  • Launaseðlum síðustu þriggja mánaða.
  • Yfirliti frá Tryggingastofun, lífeyrissjóðum, Vinnumálastofnun og önnur gögn er varða laun.
  • Skila þarf inn skattframtali fyrir árið 2010 hafi því ekki þegar verið skilað inn.
  • Endurnýja þarf húsaleigusamning ef hann er ekki í fullu gildi.

Umsókn þarf að hafa borist á skrifstofu eigi síðar en 16. janúar 2011.