Endurgreiðsla strætómiða

Bæjarstjórn ákvað á fundi sínum miðvikudaginn 28. janúar 2015 að koma til móts við þá sem sitja uppi með SBK strætómiða, sem ekki eru lengur í gildi. Unnt er að fá ónotaða miða endurgreidda gegn því að þeim sé skilað, auk þess sem greiðslukvittun fyrir miðakaupunum er framvísað eða þau sönnuð með öðrum hætti.