Endurgerð gatna í Vogum

Á 115. fundi bæjarráðs var samþykkt að taka tilboði Ellerts Skúlasonar hf í verið endurgerð gatna. Á þessu og næsta ári verður unnið að endurgerð Suðurgötu, Vogagerðis suður (sunnan Ægisgötu) og Kirkjugerðis. Fyrsti verkhluti er Vogagerði suður. Framkvæmdir hefjast í fyrstu viku ágúst (eftir verslunarmannahelgi). Áætluð verklok þess hluta eru 30. september.

Verktaki hefur verk fyrstu viku í ágúst. Byrjað verður á mótum Suðurgötu og Vogagerðis, við leikskóla og Álfagerði. Reynt verður að haga framkvæmdum á þann veg að sem fæstir verða fyrir óþægindum í einu. Þó verða allir að gera sér grein fyrir að götur lokast tímabundið, verða ófærar bílum o.s.frv.

Suðurgata verður botnlangagata á meðan unnið er í Vogagerði.
Á tímabili verður ekki hægt að komast inn á bílastæði við leikskóla. Einnig munu bílastæði við Álfagerði (Vogagerðis megin skerðast).
Vinnubúðir verktaka verða á lóðinni Vogagerði 23 (gömlu Glaðheimalóðinni).

Íbúar eru beðnir um að sýna biðlund og þolinmæði á meðan verkinu stendur.
Vogum 29. júlí, 2011
Eirný Vals, bæjarstjóri