Endurgerð gatna í Vogum

Á 115. bæjarráðs var samþykkt að taka tilboði Ellerts Skúlasonar hf í verkið endurgerð gatna.

Á þessu og næsta ári verður unnið að endurgerð Suðurgötu, Vogagerðis suður og Kirkjugerðis.

Fyrsti verkhluti er Vogagerði suður. Framkvæmdir hefjast í fyrstu viku ágúst (eftir verslunarmannahelgi). Áætluð verklok þess hluta eru 30. september.