Endurgerð gatna

Vel hefur gengið að endurnýja Vogagerði og Suðurgötu. Verkið vinnst hratt og fá óvænt mál koma upp.
Í vikunni 3. til 7. október verður steyptur kantsteinn í Suðurgötu.
Við biðjum foreldra og aðra forráðamenn að brýna fyrir börnum að leyfa kantsteininum að þorna í friði. Þegar kantsteinn var steyptur í Vogagerði þá voru börn að gera það að leik sínum að stíga í steininn. Örfá stigu óviljandi en of mörg stigu hann viljandi niður.
 
Þegar götur eru endurgerðar þá er meðal annars verið að bæta og fegra umhverfið. Kantsteinar halda við gangstéttir. Ef þeir eru eyðilagðir þá eru gangstéttir fljótar að aflagast.
 
Foreldrar, gætið barna ykkar, leiðbeinið þeim og innrætið virðingu fyrir umhverfi og sameiginlegum eignum.