Emil Barja er íþróttamaður Voga 2015

Laugardaginn 9. janúar var íþróttamaður Voga fyrir árið 2015 útnefndur. Var það gert við hátíðlega athöfn í Álfagerði og voru 4 íþróttamenn tilnefndir að þessu sinni.
Þeir voru í stafrófsröð:
Emil Barja - Körfuknattleiksmaður
Friðrik Valdimar Árnason - Knattspyrnumaður
Jónas Bragi Hafsteinsson - Handknattleiksmaður
Ragnar Bjarni Gröndal – Akstursíþróttamaður

Þessir íþróttamenn tóku við tilnefningum fyrir góðan árangur á árinu 2015 og síðan var Emil Barja útnefndur íþróttamaður Voga af frístunda- og menningarnefnd sveitarfélagsins.
Á yfirstandandi tímabili er Emil með 7,5 stig, 7,3 fráköst og 4,5 stoðsendingar að meðaltali í leik. Á árinu 2015 rauf Emil 200 leikja múrinn fyrir meistaraflokk Hauka, var valinn mikilvægasti leikmaðurinn sem og bestur að mati stuðningsmanna. Hann var svo valinn í æfingahóp A landsliðsins fyrir þátttöku liðsins á EM.
Sem fyrirliði leiddi hann svo lið Hauka í undanúrslit Íslandsmótsins vorið 2015.

Við óskum Emil innilega til hamingju með glæsilegan árangur.