Ellakajsa Nordström í gestavinnustofu

Ellakajsa Nordström er sænskur listamaður sem dvelur nú um stundir  í gestavinnustofu Sveitarfélagsins Voga og vinnur að listsköpun í Hlöðunni.
Verkefni hennar snýst um að safna ryki og öðru sem safnast á gólfi til þess að kanna þær minningar og sögur sem þess konar leifar hafa að geyma.

Hún hyggst setja saman sýningu úr þessum óvenjulega efnivið í Hlöðunni Egilsgötu 8 Vogum.

Ella er að safna ryki hvaðanæva úr Vogunum. Hún væri afar þakklát ef Vogabúar myndu gefa henni ryk, og verða á þann hátt hluti af sýningunni.


Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt eða fræðast nánar um verkefnið og listsköpun Ellukajsu geta náð í hana á netfangið  Ellakajsa@hotmail.com  
Áhugasömum er einnig bent á að Ellakajsa er fús að taka á móti gestum í Hlöðunni Egilsgötu 8.

Hér má sjá fyrri verk hennar: http://Ellakajsanordstrom.blogspot.com/