Dýradagur

Dýradagur var haldinn í  5. bekk  í Stóru-Vogaskóla,  í dag, þriðjudaginn 11. mars. Fjölmargir nemendur komu með gæludýrin sín. Nemendur höfðu áður skrifað ritgerð um dýrin sín. Mátti þar sjá hin ýmsu dýr s.s. gullfiska, mýs, hamstur, dvergkanínu, kanínu, kött og hunda. Þetta varð mjög skemmtileg stund og komu fjölmargir í heimsókn. 

Við þetta tækifæri voru teknar myndir og má sjá þær með því að smella á heimasíðu bekkjarins .