Dregið í happadrætti Meistaraflokksráðs UMFÞ

Dregið var í happadrætti Meistaraflokksráðs Þróttar í knattspyrnu nú fyrir skemmstu.  Fjöldi glæsilegra vinninga voru dregnir út og var m.a. stórglæsileg HP fartölva í aðalvinning. Sá heppni sem vann fartölvuna heitir Haukur Þórisson en á myndinni hér til hliðar má sjá hann taka við gripnum úr höndum Gunnars Helgasonar leikmanns meistaraflokks Þróttar í knattspyrnu.  Meistaraflokksráð þakkar kærlega fyrir stuðninginn sem fólk sýndi með því að kaupa happadrættismiða sem og öllum þeim fyrirtækjum sem styrktu þá með því að gefa vinninga.