Deiliskipulagskynning

Kynning tillögu að deiliskipulagi

fyrir Aragerði 4,

Sveitarfélaginu Vogum.

 

Sveitarfélagið Vogar auglýsir hér með kynningu tillögu að deiliskipulagi fyrir Aragerði 4 vegna fyrirhugaðar byggingar fjölbýlishúss á tveimur hæðum með 6 íbúðum, skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Tillagan verður til sýnis og umræðu hjá skipulags- og byggingarfulltrúa þriðjudaginn 13. júní nk. á milli kl. 15:30-16:30 á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga að Iðndal 2. Tillagan er einnig aðgengileg á vef Sveitarfélagsins Voga, /static/files/import/skipulag/skipulag_i_kynningu/skipulag_i_kynningu

Í kjölfar kynningarinnar verður tillagan tekin til umfjöllunar hjá umhverfis- og skipulagsnefnd og að henni lokinni lögð fyrir bæjarstjórn til samþykktar fyrir formlega auglýsingu hennar. Gefst þá tækifæri til að gera formlegar athugasemdir við tillöguna innan tilskilins athugasemdafrests.

 

Vogum, 8. júní 2017

Skipulags- og byggingarfulltrúi