Dansnámskeið fyrir krakka.

Skemmtilegt 8 vikna dansnámskeið fyrir bæði stelpur og stráka. Michael Jackson dansar verða í fyrirrúmi með blöndu af skemmtilegum dönsum við vinsælustu lögin í dag. Námskeiðið hentar bæði byrjendum og lengra komnum. Kennt er í 50 mínútur í senn, einu sinni í viku á þriðjudögum kl. 18:30 6-11 ára kl. 19:30 12-16 ára.


Kennarar verða Jónatan Arnar Örlygsson og María Leifsdóttir. Þau eru bæði ein af helstu dönsurum landsins í dag og hafa komið víða fram. Þau hafa dansað í fjölda söngleikja á Broadway og leikhúsum landsins, Eurovision, sjónvarpsþáttum og dansa nú í Bollywood sýningu í Turninum.
Verð á námskeið: 8.900 kr.
Námskeiðið byrjar þriðjudaginn 2. mars í Borunni.
Skráning fer fram í íþróttahúsinu frá kl. 19-21 hjá Þrótti
dagana 24. og 25. febrúar.