Dagur leikskólans 6. febrúar

Dagur leikskólans verður haldinn fyrsta sinn þann 6. febrúar næstkomandi, en verður að árvissum viðburði hér eftir. Félag leikskólakennara átti frumkvæði að Degi leikskólans, en verkefnið er unnið í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga og menntamálaráðuneytið.

Í tilefni dagsins hefur verið gefinn út bæklingum um Dag leikskólans sem hægt er að nálgast hér að neðan. Búast má við ýmissi umfjöllun í fjölmiðlum á næstu dögum. 

Bæklingur um Dag leikskólans