Í dag er dagur leikskólans - við óskum leikskólabörnunum og starfsfólki leikskólans til hamingju með daginn. Nú er búið að hengja upp flottar myndir eftir leikskólabörnin í íþróttamiðstöðinni, í Álfagerði og við bæjarskrifstofurnar. Verkin verða þar í eina viku. Kór elstu barnanna leit við í heimsókn á þessum þremur stöðum í dag.