Dagur íslenskrar náttúru

Dagur íslenskrar náttúru verður haldinn hátíðlegur 16. september næstkomandi. Bæjarráð lýsir yfir ánægju sinni með að Heilsuleikskólinn Suðurvellir og Stóru-Vogaskóli munu efna til viðburða í því skyni að vekja athygli á íslenskri náttúru.
 
Ánægjulegt væri ef sem flestir íbúar, fyrirtæki og stofnanir í sveitarfélaginu tækju höndum saman og gerðu daginn eftirminnilegan.


                                                                      Keilir